Um okkur
Hjá Heimilisfriði bjóðum við sálfræðimeðferð á viðráðanlegu verði, fyrir þau sem eiga erfitt með að stjórna skapi sínu og skaða þá sem þau elska, jafnvel þótt þau vilji það ekki.
Heimilisfriður er meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum, Heimilisfriður er staðsettur í Reykjavík en býður einnig fjarviðtöl og þjónar þannig öllu landinu.
Heimilisfriður er meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita eða hafa beitt ofbeldi í nánum samböndum. Þungamiðja meðferðarinnar snýst um að taka ábyrgð á eigin ofbeldishegðun og þróa leiðir til að takast uppbyggilega á við það sem upp kemur í samskiptum við maka.
Heimilisfriður tekur á móti öllum sem telja sig þurfa aðstoð til þess að hætta að beita maka sinn ofbeldi. Hjá Heimilisfriði er lögð rík áhersla á að ofbeldishegðun er aldrei ásættanleg, en þar er öllum skjólstæðingum mætt með mikilli vinsemd og virðingu.
Hjá Heimilisfriði er lögð áhersla á að viðkomandi þiggi aðstoðina af fúsum og frjálsum vilja og sjái sjálfur um að panta sér viðtal. Undantekning á þessari meginreglu er t.d. þegar barnaverndaraðilar, félagsþjónusta eða lögregla vísa málum til okkar.
Heimilisfriður tilheyrir hópi meðferðarúrræða á norðurlöndunum sem byggja á starfsemi Alternativ til Vold (ATV) í Noregi. Unnið er náið með ATV og starfsfólk Heimilisfriðar fer í gegnum sérhæfða þjálfun og sinnir endurmenntun.
Uppruna Heimilisfriðar má rekja til þess er Félagsmálaráðuneytið á vordögum 2006 endurvakti meðferðartilboð fyrir karla sem beita heimilisofbeldi, „Karlar til ábyrgðar“ (KTÁ). Þetta úrræði var áður í gangi á árunum 1998-2002, þá sem tímabundið tilraunaverkefni sem lagðist af vegna skorts á fjárframlögum. Eins og nafnið bendir til var meðferðin í upphafi fyrst og fremst miðuð við karla sem beittu ofbeldi í nánum samböndum. Síðar var það þó ljóst að öll kyn geta beitt öll kyn ofbeldi. Þessar útvíkkuðu forsendur leiddu til þess að nafnið, sem átti svo ágætlega við í upphafi, var orðið villandi. Því var ákveðið að leggja til hliðar hið upprunalega nafn og valið annað sem hefur breiðari skírskotun, „Heimilisfriður“ með undirtitlinum „Meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum.“ Með þessum undirtitli er vísað til þess að auk þess að bjóða gerendum ofbeldis í nánum sambönd upp á meðferð er Heimilisfriði ætlað að miðla fræðslu og þjálfun varðandi ofbeldi í nánum samböndum og afleiðingar þess til fagfólks og almennings. Þessu hlutverki sinna starfsmenn Heimilisfriðar fyrir hina ýmsu hópa víða um land. Það sem var í upphafi tveggja manna hugarfóstur hefur nú vaxið og dafnað og í dag starfa fjórir sálfræðingar og einn fjölskyldumeðferðarfræðingur hjá Heimilisfriði.
Starfsfólk Heimilisfriðar
Andrés Proppé Ragnarsson
Sálfræðingur
Jóhanna Dagbjartsdóttir
Sálfræðingur
Kristín Tómasdóttir
Fjölskyldufræðingur
Mjöll Jónsdóttir
Sálfræðingur
Sálfræðingur
Henrietta Ósk Gunnarsdóttir
Þórunn Eymundardóttir
Sálfræðingur
